Það var bara tekinn róleg helgi núna. Skrapp reyndar í keilu á föstudaginn, sem var nú bara ágæt svona af keilu að vera, kannski að maður skelli sér bara aftur fljótlega aldrei að vita. Ég fór austur um síðustu helgi, fór á þorrablót sem var bara mjög fínt. Þau klikka nú nánast aldrei þessi blót alltaf dúndrandi stemning og gleði. Ég kem vonandi til með að setja hérna inn örfáar myndir af blótinu en það verður samt að bíða um sinn.
Á sunnudaginn var 112 dagurinn niður í Smáralind. Ég kíkti á þetta og var það bara nokkuð gott. Dagurinn byrjaði á því að bílalest björgunaraðila keyrði um höfuðborgarsvæðið með þyrlunni sveimandi yfir, nokkuð tignarlegt það. Síðan var farið í smáralind þar sem tækin voru til sýnis og starfsemi björgunarsveitanna var kynnt inni á básum sem hafði verið komið upp,en þessi dagur var tileinkaður sjálfboðastarfi þetta árið.
Síðan úti á plani klipptu slökkviliðsmenn dúkku út úr bíl og sýndu almenningi hvernig staðið er að björgun úr bílflaki. Síðan kom þyrla landhelgisgæslunnar og sótti dúkkuna. Vel heppnuð sýning og greinilega algjörir fagmenn þarna á ferð sem eiga ekkert annað en hrós skilið fyrir vel unninn störf. Ég er búinn að setja inn myndir af þessum degi hérna á myndasafnið.
Að lokum vil ég óska Guðmundi Jónssyni gömlum og góðum vini mínum frá Drangshlíð til hamingju með árangurinn, en hann var að útskrifast sem viðskiptalögfræðingur frá Bifröst.
Ég var að koma úr bolta með strákunum og er alveg gjörsamlega búinn. Það er greinilegt að maður verður að fara hreyfa sig aftur, þetta gengur ekki svona. Það kannski bætti það ekkert að það var svona 32 gráður þarna inni í þessu íþróttahúsi, Kannski alveg óþarfi að kynda svona mikið, það er nú kannski ekki 10 gráðu frost enn þá, en Kópavogsbær á nógan pening. En ekki meira um það, ég er að horfa á Frakka rústa Pólverjum bara vonandi að Íslendingunum gangi eins vel með þá á morgun. Flottur leikur í dag, ég verð að viðurkenna að ég stakk af úr tíma til að horfa á leikinn, ég meina maður má ekki missa af þessu.
Ég var að horfa á Kastljósið áðan þar sem Jónína Ben var að lýsa hægðatregðunni í sér, að hún hefði verið með einhver kíló af skítakögglum föstum í þörmunum. Ég verð nú að viðurkenna að mér hefði nú verið alveg sama þótt hún hefði bara sleppt því að opinbera þetta. En sem betur fer þá fór hún í stólpípu og lét skola úr sér eins og stífluðu niðurfalli, aumingja konan hún verður nú að geta haft eðlilegar hægðir. En það besta við þetta var samt að hún var að rífast við einhvern lækni með bæði langa menntun og starfreynslu í þessum efnum. Það er jafn heimskulegt og að ég kæmi fram opinberlega og væri að rífast við stjörnufræðing um hans sérgrein. Svo finnst henni skrýtið að það sé gert grín af henni. En nóg af rugli, maður verður að fara leggja sig, vera hress þegar maður tekur á þessum pólverjum.
Ég verð nú bara að viðurkenna að ég var nú einn af þeim svartsýnu sem taldi það ekki séns að landsliðið myndi ná að vinna Frakkana í dag. Það er nú kannski ekkert mjög skrýtið að ég hafi verið svolítið svartsýnn eftir daginn í gær þar sem ég fékk tvö sár töp í andlitið á sama klukkutímanum, það er ekki hægt að segja að það hafi verið sunnudagur til sæla þar, frekar svartur dagur. En það birti heldur betur til í dag, ég fékk reyndar vonina þegar ég las bloggið á kempunum frá honum Ævari þar sem hann var að stappa stálinu í okkur og benda á að þarna var smá von. Ég hef allavegana ekki skemmt mér eins vel að horfa á landsleik í handbolta í langan tíma. Núna er bara að vona að strákarnir haldi áfram og komist upp úr milliriðlinum, tveir sigrar ættu að duga og fyrst þeir rústuðu Evrópumeisturunum ætti það að hafast. Að komast í 8liða úrslit myndi ég segja að væri mjög gott og viðunandi. Þá erum við ekki nema einum leik frá því að keppa um verðlaun á þessu móti. Ég hef fulla trú alla veganna ef strákarnir ætla að vera svona einbeittir og markverðirnir loksins að verja. Ég ætla að benda ykkur á þessa síðu, ef þið vissuð ekki af henni. Þarna er hægt að fylgjast með strákunum, skoða blogg frá þeim, video blogg og ýmis tölfræði. Þá erþað bara áfram Ísland og ég býð spenntur eftir næsta leik.
Ætli það sé til lyf sem er andstæðan við svefnlyf, svona vakningarlyf. Núna er ég búin að vera vakandi síðan hálf sjö í morgun og búin að vera reyna læra en þreytan er alltaf að ná að yfirbuga mig. Mig langar svo oft að leggja mig yfir daginn en ég veit bara að ef ég geri það þá vakna ég ekkert næstu 3-4 tímana, það er nefnilega ekkert til hjá mér sem heitir smá blundur, ég bara get ekki vaknað aftur. Hef verið að reyna kaffi og alskonar vítamín en það er bara ekkert að virka, þetta er kannski bara eittvað sálrænt, hugsanleg leti. Maður verðu bara svo svakalega þreyttu þegar maður fer að lesa bækur sem koma eitthvað skóla við. Svo er alltaf svo gaman af því að þegar maður fer svo að sofa á kvöldin þá er maður bara ekkert þreyttur og ætlar aldrei að sofna.
Allavegan langaði bara að deila þessu með ykkur, maður á nefnilega alltaf svo erfitt þegar maður er í prófum, eða þannig. Það er allavegana loksins komið blogg og aldrei að vita nema þau verði fleirri í bráð, á eftir að setja inn myndir síðan úr danmerkur ferðinni í haust, það var svaka stuð og hefði mátt vera lengri ferð því ekki gafst tími til að gera allt sem þar þurfti að gera.
Nú er best að halda áfram að læra, klára þetta helvíti(afsakið orðbragðið) svo maður geti farið í jólafrí með góða samvisku
Það er ekki að spyrja að því, þegar maður sest niður og fer að læra fyrir próf þá kemur sumarið loksins, svona hefur þetta alltaf verið og mun alltaf vera. Maður verður bara að sætta sig við það og drífa þenan skóla af svo maður geti farið að hanga úti í sólinni. Ég fór í sveitina um helgina, fór í jarðaför og var svo að reyna að læra, hefur ekki reynst mér vel að læra í sveitinni hingað til sérstaklega ekki fyrir próf og það varð engin breyting þar á . Ég gerði nú samt eins og ég gat og var það nú bara nokkuð.En á leiðinni í bæinn kom ég við á Flúðum, en amma mín sem býr í Vestmannaeyjum var þar að halda uppá afmælið sitt. Ég borðaði þar góðan mat og brunaði svo í bæinn í orðsins fylstu merkingu, allavegana fannst Lögguni á Selfossi það og stoppaði mig fyrir að vera að flýta mér of mikið. 111 km/h var það, algjört agaleysi þar á ferð og óþarfa glannaskapur, sem kostar mig 7-10000 kr, það hefur sennilega ekki verið mikið að gera hjá þeim yfir daginn þannig að ég hef sennilega verið kærkominn glanni. Vonandi að þau hafi sofið vel. Ég lét þetta ekki hafa mikil áhrif á mig heldur keyptum við(Sigrún) okkur ferð til Köben daginn eftir. Tilboð hjá Express 2000 kall miðinn aða leið fyrir utan flugvallarkatta, s.s. 25.000 kall fyrir okkur tvö fram og til baka, ekki dýrt það. Við ætlum að skella okkur í september og taka eina langa helgi, svona smá frí eftir sumarið. Það er menningarnótt á laugardaginn og er ég að spá í að taka mér smá frí frá lærdómnum og gera eitthvað skemmtilegt í tilefni dagsins. Það er bara spurning hvar sú skemmtun verður, ég veit ekki, það kemur bara í ljós. Ég má allavegana ekki halda partý þar sem það er prófatími og mig langar að halda íbúðinni. Ég hafði hérna með að ofan mynd sem ég tók á landsleiknum Íslan vs Spánn á þriðjudaginn. Set svo kannski fleiri myndir inn af leiknum aldrei að vita þótt að þær séu ekki í miklum gæðum. Þetta er allvagana komið gott í bili held ég bara ....
Jæja þá er maður kominn úr Blogg sumarfríi og ætla nú að blogga sem aldrei fyrr. Það finnst kannski mörgum skrítið sem þekkja mig og líta á tímasetninguna á þessu bloggi að ég skuli vera að skrifa,en ekki í Herjólfsdal að búa mig undir brekkusöng. En svona er þetta nú bara, sennilega er sama ástæða fyrir því að ég er kominn úr blogg sumarfríi og er ekki á Þjóðhátíð. ÉG Á AÐ VERA LÆRA FYRIR SUMARPRÓF. Já svona er þetta bara maður verður að forgangsraða. Það er ekki mikið sem maður hefur gert í sumar nema vinna. Við fórum einn dag í sumar og keyrðum um Hvalfjörð og Borgarfjörð, ég setti reyndar nokkrar myndir af þeirri ferð um daginn hérna inn á síðuna. Ég er búinn að faraí eina útilegu í sumar og það var ættarmót sem segir sitt um hvað ég hef gert mikið í sumar, það var nú samt bara nokkuð gaman. Set fljótlega myndir af því hérna inn fyrir þá sem vilja sjá þær. Setti samt hérna eina inn að ofan af Trailernum sem við fórum á austur, en ættarmótið var í Fljótshlíð. Í stað þess að fara á Þjóðhátíð þá fórum við á föstudagskvöldið í sveitina til að slá og vinna okkur inn smá pening á laugardeginum. En í morgun áður en við fórum aftur í bæinn að læra þá lenti ég í að aðstoða við að bjarga rútu sem var næstum oltinn ofan í ræsi á skógum, full af frökkum. Allt bjargaðist það samt að lokum og rútan hélt sína leið, og við í bæinn að læra. Ég set hérna myndir inn af rútunni líka bara svona til gamans. En nú er sennilega kominn tími til að halda áfram að læra. Það verður sennilega ekki lengi að bíða eftir næstu færslu.
Þá er helgin liðin og hið daglega líf hversdagsins tekið við. Kíkti í sveitina um helgina og var það bara nokkuð gott. Nema kannski að við kíktum að Sólheimajökli og á leiðinni þangað þá brotnaði pústið á bílnum mínum, það er reyndar búið að laga það en pústið kostaði samt 21.000 kr sem er nú ekki lítið.
Það voru einnig kostningar um helgina sem er alltaf jafn gaman, sat lengi yfir spennandi kostningasjónvarpi sem sveik ekki frekar en fyrridaginn. Þessar kostningar fóru nú svona nokkuð vel allavegana þá í Reykjavík. Það er samt alltaf jafn gaman að fylgjast með hvað gerist eftir kostningar þegar menn fara að mynda meirihluta og þess háttar. Það er alveg magnað að flokkur eins og Framsóknarflokkurinn sem er orðinn samasem ekki neitt nær nánast alltaf að koma sér í meirihluta samt með ekkert fylgi kannski bara með einn mann inni en samt í meirihluta, þetta er nú alveg afrek útaf fyrir sig. Og svo með Vinstri flokkana sem virðast á flestum stöðum ekki geta myndað meirihluta, hvað er það, kannski loksins tækifæri til að stjórna og þá er það ekki hægt. Ég held nú bara að þessir flokkar geti ekki höndlað þá ábyrgð. Eru kannski bara bestir í að nöldra og passa sig að vera ekki sammála neinu sem stjórnar flokkarnir leggja fram. En þetta er samt nóg af pólitík. Veriði sæl....
Þá er komið að því, maður er bara að fara í sveitina á morgun í fyrsta skipti í mjög langan tíma. Kannski alveg kominn tími til enda næstum hálft á síðan maður lét sjá sig þar síðast. Stóð reyndar til boða að fara í bústað á Apavatn, sem hefði verið mjög gaman. En ég ákvað frekar að fara í sveitina, endaer það aðeins hagkvæmara svona peningalega sé. Í tilefni af sveitaferðinni hef ég ákveðið að setja hérna inn eina mynd úr sveitinni. Það er búið að vera ágætis veður í dag og ekki verra að vera í fríi. Maður er nú ekki vanur því að vera í vinnu sem maður fær frí á rauðum dögum og eru það alveg ótrúlega margir dagar sem maður á frí. Þá er nú gott að njóta þess og slappa bara af og láta sér líða vel. En allavegana þangað til næst....... veriði sæl oggóða helgi....
Það var aldeilis tekið á því um helgina, það held ég nú. Það var nú bara laugardagskvöldið samt þar sem ég var að vinna á laugardeginum og skemmtanaúthaldið kannski ekki alveg eins gott og áður sökum lélegs viðhalds núna síðastliðna mánuði. Það var alavegana skellt sér í partý til hennar Iðunnar sem klikkaði nú ekki frekar en fyrridaginn. Bollan stóð fyrir sínu og ekki laust við að þessi söngvakeppni hafi verið svolítið aukaatriði allavegana svona til að byrja með. En við fórum samt á Nasa eftir partýið í annað Euro-partý sem Páll Óskar stóð fyrir, og að vanda þá klikkaði ekki kallinn. Ég set hérna inn myndir fljótlega frá gleðinni en nú verð ég að fara að koma mér í vinnuna.
Já þá eru prófin búinn og maður er kominn í sumarfríog mikil hamingja í gangi Ég hélt á tímabili að þessu ætlaði aldrei að ljúka og vissi bara ekki hvað ég hafði gert af mér til að verðskulta þetta tímabil þunglindis og myrkurs. En nú er þessu lokið sól í heiði og bjartir tímar framundan. És skellti mér á fótboltaleik í Landsbankadeildinni gærkvöldi, Breiðablik vs Valur. Hörku bolti eða þannig. Svona ekta íslenskur bolti, “kick and run”, hár bolti fram frá varnarmanni, og sóknarmaður reynir að stynga sér innfyrir og skora., þar á milli bara svona skemmtilegt “miðjuþóf”. Ég á samt ekkert að vera kvarta hef mjög gaman af því að fara á völlinn, svona partur af sumrinu. Ég hef hérna mynd með af fyrra marki Breiðabliks í leiknum, sem kom eftir hornspyrnu. Ef þið skoðið vel þá sjáið þið hann Ragnar Heimi þarna í barátunni næst okku og ég sé ekki betur en Valsmaðurinn sé að reyna að klæða hann úr treyjunni. Dagurinn í dag hefurbara verið nokkuð góður , skelti mér í klippingu til hennar Iðunnar sem er alltaf jafn hressandi, fór í Smáralind að versla og hafði það bara nokkuð gott. Svo er bara fyrsti vinnudagur í fyrramálið, þarf reyndar að vakna klukkan hálf fjögur í nótt til að keyra Sigrúnu til Keflavíkur þar sem hún er að fara til London snemma í fyrramálið, en það bara hressir, kætir og bætir......